Nemendur
Smelltu á hnappinn til að skoða
og prófa áskorun.
Kennarar
Smelltu á hnappinn til að skrá þig inn eða
skrá þig sem umsjónarmaður.
Bebras áskorunin er skemmtileg alþjóðleg áskorun sem haldin er árlega í yfir 70 löndum og ætluð til kynna tölvunarhugsun fyrir ungu fólki og vekja áhuga barna og ungmenna á STEM greinum.
Áskorunin er ókeypis og öllum nemendum á aldrinum 6 - 18 ára boðið að taka þátt. Markmiðið er að sem flestir nemendur fái tækifæri til að vera með.
Bebras er í boði bæði á íslensku og ensku og fer þátttaka fram á netinu. Nemendur hafa 45 mínútur til að glíma við skemmtileg verkefni sem byggja á tölvunarhugsun (e. Computational Thinking) og eru sniðin að þeirra aldri. Eftir að áskorun lýkur geta kennarar nýtt sér efnið til að vinna áfram með nemendum. Verkefnið er keyrt samhliða í flestum löndum í byrjun nóvember á hverju ári.
Ísland hefur tekið þátt í Bebras áskoruninni með góðum árangri frá árinu 2015.
Árið 2025 voru þáttakendur tæplega 4,3 miljónir frá 78 löndum.
| Ár | Fjöldi skóla | Fjöldi nemenda |
|---|---|---|
| 2025 | 44 | 3.162 |
| 2024 | 46 | 3.200 |
| 2023 | 51 | 3.366 |
| 2022 | 30 | 2.415 |
| 2021 | 24 | 2.102 |
| 2020 | 35 | 2.503 |
| 2019 | 48 | 2.353 |
| 2018 | 24 | 1.357 |
| 2017 | 24 | 2.045 |
| 2016 | 18 | 1.780 |
| 2015 | 14 | 475 |
Hvernig fer Bebras áskorunin fram?
Nemendur geta tekið þátt (einu sinni) hvenær sem er á tímabilinu og hafa 45 mínútur til að glíma við áskorunina. Áskorunin virkar í helstu vöfrum og á spjaldtölvum.
Spurningarnar eru miðaðar við aldur og eru aldurshóparnir sex: 6-7, 8-9, 10-11, 12-13, 14-15 og 16-18+ ára. Þegar nemendur eru stofnaðir í kerfinu þarf að ákveða hvaða aldurshópi þau tilheyra.
Eina sem þarf að gera er sækja um aðgang fyrir skólann á www.bebras.is/admin. Að hausti, fyrir áskorun, stofnar skóli svo aðgang fyrir þá nemendur sem ætla að taka þátt. Ferlið er einfalt og tekur ekki langan tíma.
Ský er í forsvari fyrir Bebras á Íslandi og hægt að fá nánari upplýsingar í gegnum sky@sky.is