Nemendur geta skráð sig inn til að sjá hvernig þeim gekk.
Kennarar geta skráð sig inn í umsjónarkerfið og nálgast niðurstöður.
Nemendur
Smelltu á hnappinn til að skrá þig inn og skoða hvernig þér gekk.
Kennarar
Smelltu á hnappinn til að skrá þig inn eða
skrá þig sem umsjónarmaður.
Markmið Bebras áskoruninnar er að kynna tölvunarhugsun fyrir nemendum um allan heim. Þessi spennandi áskorun fer fram í skólum, undir umsjón kennara, í nóvember á hverju ári.
Allir skólar með nemendur á aldrinum 6 - 18 ára geta tekið þátt
Bebras áskorunin kannar rökhugsun og tölvufærni með því að láta þátttakendur leysa krefjandi og skemmitleg verkefni. Það kostar ekkert að taka þátt og markmiðið að fá alla skóla með. Verkefnið er keyrt samhliða í flestum löndum í byrjun nóvember á hverju ári.
Ísland hefur tekið þátt í Bebras áskoruninni með góðum árangri frá árinu 2015
Ár | Fjöldi skóla | Fjöldi nemenda |
---|---|---|
2024 | 46 | 3.200 |
2023 | 51 | 3.366 |
2022 | 30 | 2.415 |
2021 | 24 | 2.102 |
2020 | 35 | 2.503 |
2019 | 48 | 2.353 |
2018 | 24 | 1.357 |
2017 | 24 | 2.045 |
2016 | 18 | 1.780 |
2015 | 14 | 475 |
Þetta er tilvalið tækifæri til að leyfa nemendum að glíma við skemmtileg verkefni. Áskorunin fer fram á vefnum og geta nemendur tekið þátt hvort sem þeir eru í skólanum eða heima.
Hvernig fer Bebras áskorunin fram?
Nemendur geta tekið þátt (einu sinni) hvenær sem er á tímabilinu og hafa 45 mínútur til að glíma við áskorunina. Áskorunin virkar í helstu vöfrum og á spjaldtölvum.
Spurningarnar eru miðaðar við aldur og eru aldurshóparnir sex: 6-7, 8-9, 10-11, 12-13, 14-15 og 16-18+ ára. Þegar nemendur eru stofnaðir í kerfinu þarf að ákveða hvaða aldurshópi þau tilheyra.
Eina sem þarf að gera er sækja um aðgang fyrir skólann á www.bebras.is/admin. Að hausti, fyrir áskorun, stofnar skóli svo aðgang fyrir þá nemendur sem ætla að taka þátt. Ferlið er einfalt og tekur ekki langan tíma.
Ský er í forsvari fyrir Bebras á Íslandi og hægt að fá nánari upplýsingar í gegnum sky@sky.is